Góðan daginn langt síðan ég hef bloggað svo
hér kemur eitthvað.Jólin voru snilld á aðfángadag var gaman,
maturinn var rosalega góður og síðan voru pakkarnir. Fékk
tölvuleik föt,bók, geisladisk, kerti og spil hehe eða ég fékk
ekki kerti.Þegar pakkarnir voru búnir fengum við okkur ís og
fórum aðeins í singstar
Á öðrum á jólum fórum við eins og vanalega í Mýrarkot og fengum
góðan mat.Síðan var margt meira gaman en það ávalt best á jólum er
að slaka á og borða nammi.hehe.
´´Eg sleppi einhverju en fer beint á Gamlárskvöld. Við slepptum
hefð okkar að fara til Húsavíkur og fórum í Hól og fögnuðum nýja
árinu þar. við horfðum fyrst á Áramótaskaupið og fórum síðan beint
út. Áramótaskauðip var ágætt soldið flipp í því en ágætt. Síðan
vorum við að skjóta flugeldum úti, pabbi keypti Troðna,og það var
gott,við skutum þessu upp en allt fólkið fóru strax inn þegar þetta
stóra var búið svo við Magnús sáum um að klára þetta litla. Það var
gaman að sprengja þetta, hann fékk þetta reyndar frosk í augað en
við héldum áfram og kláruðum þetta.Síðar fórum við inn að spila og
spiluðum lengi eftir kvöldi og fórum svo smá í Singstar og síðan
heim.Við komum heim svona um 5 og fórum í rúmið ég fór að lesa
Harry Potter og Blendingsprinsinn, snilldar bók. Og daginn eftir
fór Pabbi í vinnuna.En tvem dögum eftir það fórum við til Húsavíkur
að klára Kalkúninn og Humarinn hjá Ódu sem var gott.
Síðan gerðist margt, en í gær var fjórtándabrenna, það var ekki
hægt að halda hana þrettánda út af veðri svo hún var haldin þann
fjórtánda. Laugardagurinn 14 var snilld fyrst afmæli svo brenna
síðan grímuball.Ég fór í smá búning en það eru alltaf færri og
færri sem koma í búning sem er ekki nógu gott.Bestu búningarnir
voru hjá Björgvini og Alla, Björgvin var kvenmaður og Alli
trúður.það var smá dansað síðan var stólaleikur sem maður átti að
ná í einhvern, ég náði langt en náði ekki að vinna en lenti í
úrslitum í hinum stólaleiknum sem maður átti bara einfaldlega að ná
sæti.síðan var marserað og fleira en þetta allt saman er búið að
vera mjög gaman.
PS en það væri gaman ef fleiri gætu kvittað í gestabók
Kv.Friðbjörn Bragi Gleðileg jól og Gleðilegt nýtt ár og takk
fyrir það gamla.